Þegar þú hefur keypt spilin þá er þetta upplagt prógram til að byrja á
Undirbúningsæfingar
- Komdu þér vel fyrir með spilin fyrir framan þig.
- Byrjaðu á að beina athyglinni að líkamanum þínum, hvernig þú situr og hvernig þú upplifir líkamann.
- Beindu svo athyglinni að andardrættinum, finndu hvernig þú andar og hvernig brjóstkassinn hreyfist.
- Dragðu andann djúpt 3 sinnum – teldu upp á 4 við innöndun og upp á 8 við útöndun.
Þegar þú vinnur með prógrammið er gott að hafa eftirfarandi í huga.
- Veldu helst sama tíma dags til að koma á rútínu t.d. fyrir eða eftir að þú borðar morgunverð… eða bara þegar þér hentar.
- Miðaðu við að dvelja við spilin minnst 10 mínútur á dag.
- Stokkaðu spilin í rólegheitum og tengdu inn á við þ.e. skoðaðu hvernig þér líður og hvernig þú upplifir stað og stund akkúrat núna.
- Gefðu þér tíma til að tengja við daginn og þínar áskoranir.
- Dragðu spil og leggðu það á hvolf.
- Snúðu spilinu við og skoðaðu myndina, litina og hugtakið.
- Flettu upp á spilinu í bæklingnum (enskur texti) eða á heimasíðunni. https://www.kickonmind.com/spilin (íslenskur texti) og lestu um spilið.
- Tengdu þína túlkun á spilinu við þína líðan og skoðaðu hvernig þú speglar það við verkefnin þín og daginn framundan.
- Skoðaðu litina í spilinu og fyrir hvað þeir standa.
- Taktu þessa orku með þér inn í daginn.
Dagur 1
- Byrjaðu á að fara í gegnum undirbúningsæfingarnar.
- Þegar þú hefur stokkað spilin í svolitla stund flettu í gegnum spilin og sorteraðu alla Meistarana (spilin með svarta rammanum) frá bunkanum.
- Raðaðu þeim í rétta númeraröð 1-7.
- Taktu Meistara nr 1.1. flettu upp á honum í bæklingnum (enska) eða hér á heimasíðunni (íslenska).
- Lestu textann, sjáðu fyrir þér rauða litinn og tengdu við þína innri líðan. Taktu þessa orku/skilaboð með þér inn í daginn.
Dagar 2-7
Sama rútína og fyrir dag 1 – lestu um einn Meistara á dag í réttri númeraröð – næst er Meistari nr 2.2.
Þú hefur nú lesið um alla Meistarana og veist fyrir hvað hver litur stendur. Nú er komið að þér að draga spil. Notaðu spilabunkann án meistaraspila.
- Farðu yfir undirbúningsæfingarnar áður en þú stokkar.
- Dragðu 1 spil og leggðu á hvolf.
- Snúðu spilinu við. Skoðaðu spilið og rifjaðu upp fyrir hvað litirnir standa.
- Flettu upp á spilinu, í bæklingnum eða á heimasíðunni, og lestu textann.
- Tengdu þína túlkun á spilinu við það hvernig þér líður og verkefnin/áskoranirnar framundan.
- Leyfðu þessari orku að fylgja þér inn í daginn.
Nú ert þú farinn að túlka og upplifa spilin á þinn hátt. Þú ert farinn að spegla liti við þína líðan og þínar áskoranir/verkefni. Þá er næsta mál að tengja fleiri spil saman.
- Farðu yfir undirbúningsæfingarnar.
- Settu meistarana aftur í spilabunkann.
- Stokkaðu spilin og dragðu tvö spil sem þú leggur á hvolf.
- Snúðu við fyrra spilinu – skoðaðu litina, lestu textann og túlkaðu eins og þú ert vanur.
- Snúðu við seinna spilinu og gerðu það sama.
- Reyndu nú að finna samhengi milli þessara spila og búðu til tenginar – fylgstu með viðbrögðum þínum. Hvað hrærist með þér? Vaknar einhver minning? Færðu hugmynd?
Vika 4 – dagur 22-28
- Sama rútína og vika 3 nema nú bætir þú við þriðja spilinu.
- Dragðu 3 spil og legðu þau á hvolf.
- Snúðu við fyrsta spilinu og svo spili 2 og 3 og finndu þína tengingu milli þessara spila
Þegar viku 4 er lokið þá hefur þú stundað andlega þjálfun í 28 daga. Haltu áfram að gefa þér þennan tíma, prófaðu þig áfram og finndu þínar leiðir.
Sýnt hefur verið fram á að hugleiðsla dregur úr streitu og kvíða, skerpir fókus og eykur andlegan styrk. Hugleiðsla hefur reynst mikilvæg viðbót í almennri þjálfun íþróttaliða og afreksmanna um árabil.
Þú getur spurt spurninga og með hjálp spilanna fundið svör innra með þér.
Með reglulegri notkun verða spilin sífellt aðgengilegri og notadrýgri. Það er ákveðin list að lesa úr spilum og það tekur tíma að þjálfa upp færni. Þú ferð smám saman að hugsa dýpra og út fyrir rammann. Það getur stundum verið óþægilegt að fara á ókunnar slóðir en það er eina leiðin til að eflast og styrkjast.
Mundu að það er með hugann eins og fallhlífar, þær virka best opnar.
Síðast en ekki síst – töfrarnir búa innra með þér, spilin hjálpa þér að laða það fram.
Það sem þú veitir athygli vex og dafnar!
