Home » Tilboð fyrir Exedra
Við vorum hvött til að gera meðlimum hópsins tilboð á þessu öfluga hugleiðslukerfi sem fjöldi afreksfólks er að nota til að koma sér í gírinn og auka árangur. Virkar fyrir alla, bæði afreksfólk og aðra sem vilja ná betri tökum á hausnum. Þið fáið 20% afslátt af Meistarakerfinu fram að jólum með því að nota afsláttarkóðann „exedra22“ í kaupferlinu hér á vefnum
Spilastokkurinn
Ólíkt líkamlegri þjálfun þá fer andleg þjálfun að mestu leyti fram í ró og næði. Þú íhugar, eða hugleiðir, ferð inn á við og tengir saman ólíka þætti sem búa innra með þér. Þú lærir að þekkja sjálfan þig. Meistarakerfið er hannað til að auðvelda þetta uppbyggilega ferðalag.
Kerfið hjálpar þér að fara inn á við, örva skapandi hugsun, tengjast sjálfum þér, upplifa tilfinningar og læra að hlusta á innsæið.
Reglubundin notkun skerpir nauðsynlegan fókus þegar glímt er við krefjandi verkefni.