Spilin

Spil eru ein elsta skemmtun í heimi og þau hafa verið notuð á ýmsan hátt, ekki aðeins til gamans. Með þeim hefur verið leitast við að spá fyrir um framtíðina, þess freistað að finna svör við áleitnum spurningum og þau notuð til að þroska eiginleika okkar og hjálpa okkur að lifa innihaldsríkara lífi með andlegri þjálfun.

Við vonum að Meistaraspilin sem hér um ræðir hjálpi þér að umbreyta hugarfari þínu og þú náir meiri árangri, finnir betra jafnvægi og að þau verði þér á allan hátt bæði til gagns og gamans. Í spilastokknum eru 49 spil í 7 litum fyrir hverja sort. Spilin endurspegla liti regnbogans og eru litirnir númeraðir frá 1-7 eftir þéttleika litarins en hver litur hefur ákveðna tíðni í litrófi ljóss. Rauður hefur lægstu tíðnina sem svo eykst í appelsínugulum, þá gulum, svo himinbláum, dökkbláum og loks fjólubláum sem hefur hæstu tíðnina af þeim litum sem við notum.

Hver sort hefur sinn lit og tíðni litarins kallast á við þitt eigið tíðnisvið, líkamlegt og andlegt. Þar sem er meiri þéttleiki er tíðni lægri. Þéttleiki líkamans er mestur og því er litur hans rauður. Appelsínugulur hefur hærri tíðni og táknar orkuna sem þú býrð yfir og gulur kraftinn. Þessir þrír þættir mynda þrjú lægri tíðnisvið þín.

Fjórða sortin er græn og táknar jafnvægi á milli lægri og hærri tíðnisviðanna.

Þeir þættir sem eru á hærra tíðnisviðinu eru þrír, samhljómur sem er himinblár, fókus í dökkbláum lit og innsæi sem er fjólublátt. Þeir eru ekki eins áþreifanlegir og hinir en þú skynjar þá samt. Líta má á litina sem litróf hæfileika sem þú hefur til að bera og þú getur notað þá til að auka færni þína bæði í íþróttinni og í lífinu almennt.

Á hverju spili eru 2 númer, fyrra númerið vísar til bakgrunnsins og seinna til myndarinnar í forgrunni. Spilin eru ýmist leikmannaspil eða meistaraspil. Meistaraspilin eru með sama lit bæði í bakgrunni og forgrunni, þau eru einskonar ígildi ássins í hverri sort. Hvert leikmannaspil er tvílitt og stendur fyrir ákveðna eiginleika sem mikilvægt er að þroska bæði sem leikmaður og sem manneskja. Þegar þú túlkar spilin og lest skilaboðin er ekki síður mikilvægt að veita litunum athygli.

Það eru ýmsar leiðir til að leggja spilin. Þú velur þá aðferð sem hentar þér best en áður en þú leggur spil skaltu róa hugann og draga fram ef það er eitthvað sérstakt sem þú ert að velta fyrir þér – einhver spurning eða viðfangsefni. Fylgstu með viðbrögðum þínum. Hvað hrærist með þér, vaknar einhver minning? Færðu hugmynd?

Við mælum eindregið með því að þú notir spilin reglulega. Hvert spil hefur merkingu en hver hún er hverju sinni, er háð túlkun þinni. Sama spil getur haft aðra þýðingu fyrir þig en einhvern annan og inntakið getur verið mismunandi á ólíkum tímum í lífi þínu. Þess vegna er svo mikilvægt að nota spilin sem oftast og læra inn á boðskap þeirra og merkingu.

Aðaltilgangurinn með spilunum er að njóta þeirra, hafa bæði gagn og gaman af þeim. Því meira sem þú vilt læra um sjálfan þig, því dýpra getur þú kafað.

Svo fylgir þessu bónus. Séu spilin notuð eins og við leggjum til þá þjálfast þú í íhugleiðslu sem nýtist vel við ýmsar aðstæður. Sýnt hefur verið fram á að hugleiðsla hafi hjálpað íþróttamönnum að draga úr streitu og kvíða, auka einbeitingu og skerpa fókusinn, einnig að takast á við verki og sársauka, stjórna betur tilfinningum og efla ónæmiskerfið! Og þetta eru ekki bara orðin tóm, hugleiðsla hefur reynst mikilvæg viðbót í almennri þjálfun íþróttaliða og afreksmanna um árabil.

Síðast en ekki síst ­– töfrarnir búa innra með þér, ekki í spilunum. En þau hjálpa þér að laða þá fram.