5.2 Að tala
Tjáðu þig en talaðu sannleikanum samkvæmt, vertu hjálpsamur og vingjarnlegur.
Lítum á tvennskonar tal. Annars vegar daglegt spjall í hópi um daginn og veginn og hins vegar mál sem beint er til ákveðinnar manneskju í ákveðnum tilgangi. Slík orð hafa áhrif. Við munum yfirleitt það sem fólk segir beint við okkur.
Samtal er lykilatriði í góðum fótbolta. Leikmenn tala hver við annan og þjálfari hefur sitt að segja. Þegar þú segir eitthvað, leggur þú eitthvað til? Bætir þú einhverju við? Ekki sóa orðum þínum með því að móðga aðra með þeim, særa eða misbjóða. Enginn kærir sig um það. Það er mjög mikilvægt að muna það. Ef þú vilt að á þig sé hlustað skaltu gæta þess að leggja til eitthvað sem skiptir máli á þann veg að það sé satt og rétt, tónninn vinsamlegur og hvetjandi og að baki búi góður hugur. Ef þú finnur þetta ekki innra með þér er betra að þegja. Mundu að orð hafa áhrif.