Spilin

6.1 Uppgötvun

Þekktu sjálfan þig út og inn og þú uppgötvar hver þú getur orðið. Vertu forvitinn og leitandi. Fjársjóðirnir leynast víða, leynidyr sem þarf að ljúka upp, óvænt undur. Vertu áræðinn! Kannaðu óþekkta stigu og þú getur verið viss um að breytingar munu eiga sér stað. Vertu óhræddur við að fara ótroðnar slóðir og uppgötva eitthvað nýtt í fari þínu sem leikmanns. Vertu opinn fyrir nýrri leiktækni, annarri stöðu, nýju kerfi. Kannski þarftu að bregða út af því sem þú ert vanur. En aðeins þannig kemstu að því hvað í þér býr. Leitið og þér munuð finna!