3.6 Aðgát

Hafðu trú á sjálfum þér og vertu hugrakkur – en varkár.
Hefurðu á tilfinningunni að eitthvað sé ekki eins og það á að vera? Taktu þá mark á því. Vertu varkár og vakandi.
Vertu vakandi fyrir líkama þínum, fylgstu með kraftinum sem losnar þegar þú opnar fyrir orkubirgðirnar. Þú ert alltaf að leika með eld. Taktu mark á sársauka og meiðslum. Ekki tækla af offorsi. Sýndu kænsku. Vertu nákvæmur. Gættu að skapsmunum þínum. Það er ekki sterkur leikur að deila við dómarann eða félaga sína. Farðu varlega.