Spilin

3.5 Samvinna

Saman sigrum við. Loga á kerti má kæfa með tveimur fingrum. Rasandi eld ræður enginn við. Þannig má einn leikmaður sín oft lítils en liðið allt getur verið ósigrandi. Egóið með sína sérhagsmuni víkur, samhljómur ræður för. Markmiðið er skýrt, sameiginlegt. Þannig á lið að starfa. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Sumir leikmenn hugsa bara um sig og persónulegan frama. Sjálfsöryggi er nauðsynlegt til að ná árangri en sjálfumgleði eyðileggur liðsheildina. Í góðu liði eru ekki endilega allir bestu leikmennirnir. En gott samspil allra lyftir liðinu á hærra plan. Þegar þú leggur þitt af mörkum til liðsins verður þú sjálfur betri leikmaður. Þótt liðið sé ekki það öflugasta eru risarnir aldrei óhultir fyrir samstilltu átaki. Davíð er sífellt að sigra Golíat. Vertu góður liðsmaður.