Spilin

2.4 Fögnuður

Þegar þú hefur öðlast það sem þú þráðir hefur þörfum þínum verið fullnægt. Njóttu þess. Þá er sannarlega tilefni til að gleðjast. Þegar þú þráir eitthvað af öllu hjarta getur þú nýtt þrána til að knýja þig að markinu. Ef löngunin er til staðar, þarftu engar áhyggjur að hafa. Þú getur náð markmiðum þínum. En þú verður virkilega að þrá árangur. Og þú munt þurfa seiglu. Mundu samt að heimsmeistaratitillinn er ekki endilega markmiðið hér. Gleðin kemur af því að ná því sem þú stefndir að. Þegar þú finnur þessa tilfinningu veistu að erfiðið hefur skilað sér. Gerðu alltaf þitt besta. Þá er sama hver niðurstaðan verður, þú munt alltaf geta glaðst og fagnað vel unnu verki!