5.7 Samþætting
Nýttu allt sem þú lærir – vel.
Allar æfingarnar, tæknin sem við lærum og kerfin sem við æfum, óteljandi klukkustundirnar sem við höfum varið í íþróttina miða aðeins að einu marki – leiknum. Hvort sem er í lífi eða leik, verðum við að samtvinna ólíka þætti svo þekking okkar og geti virkað eins og vel smurð vél, allt vinni lipurlega saman. Tengdu saman allt sem þú hefur lært og þú ferð tvíefldur inn á völlinn.
Manstu eftir sérlega góðum leik? Þegar þú skaraðir fram úr og allt gekk upp? Þá hefur allt snúist á sömu sveif. Þannig virkar samþætting. Æfingarnar þínar, hugleiðslan og einbeitingin, liðsheildin – öll pússlin raðast rétt saman og þú blómstrar á vellinum sem aldrei fyrr.