Spilin

7.2 Einfaldleiki

Enga óreiðu, hvorki innra né ytra. Léttleiki og einfaldleiki haldast í hendur. Rígheldur þú í eitthvað sem þjónar þér ekki lengur? Gamalt ergelsi? Slæman vana? Fíkn? Eða er mikið róðarí í kringum þig, allt fullt af drasli heima hjá þér? Notarðu það allt? Ef ekki, skaltu losa þig við það. Of mikið dót er íþyngjandi, dregur þig niður. Losaðu um. Andaðu léttar. Fótbolti er í raun afar einfaldur leikur. En ímyndaðu þér ef leikreglurnar fylltu tíu, tvö hundruð síðna bindi! Enginn myndi skilja leikinn, enginn myndi hafa gaman af honum, hvorki leikmenn né áhorfendur. Fólk yrði ruglað í ríminu. Við flækjum stundum málin að óþörfu. Sumir leikmenn skara kannski ekki fram úr en eru samt mikilvægir því þeir ná oft, með einföldum aðgerðum, að koma leiknum aftur á réttan kjöl eftir slæmt útspil annarra. Ekki flækja hlutina að óþörfu. Völlurinn er ekki völundarhús. Njóttu!