Spilin

6.4 Innblástur

Sæktu þér innblástur. Finndu út hvað kveikir í þér. Innblástur getur komið úr ólíkum áttum, með bóklestri, af samvistum við áhugavert fólk eða fyrir undur náttúrunnar. Vertu leitandi og vertu öðrum innblástur. Annálaðir fótboltamenn eru okkur öllum hvatning. Þú veist hverjir þeir eru. Þeir kveikja í okkur, kynda undir ímyndunaraflið og við viljum verða eins og þeir, ná lengra og stefna enn hærra. Gerðu þessar hetjur að persónulegum fyrirmyndum þínum, láttu þær blása þér móð í brjóst. Láttu mark þitt vera meðal þeirra stóru.