Spilin

1.5 Uppbygging

Búðu þig undir átök. Byggðu upp styrk. Stundaðu æfingar til að öðlast styrk. Taktu á veikleikum þínum. Það skiptir minna máli hversu oft og mikið þú æfir heldur en hvernig þjálfunin er. Þú þarft að búa líkamann undir átökin sem hann á óhjákvæmilega eftir að takast á við. Vertu vel meðvitaður um líkama þinn, þannig að þú þekkir hann út og inn og áttir þig á raunverulegri líðan þinni. Líkaminn mun segja þér hvaða áherslur eru bestar. Þegar þú lyftir lóðum, byggir þú upp vöðvamassa. Þú ert ekki að berjast við lóðin. Því þarftu að huga að önduninni meðan þú lyftir og gæta þess að teygja vel í lokin. Og ekki gleyma að svo þarftu að hvíla þig. Í svefni losar líkaminn vaxtarhormón sem eru í raun árangur erfiðis þíns.