2.6 Þolinmæði

Góðir hlutir gerast hægt.
Er ekki komið að þér? Er tímasetningin röng? Klókur maður veit
hvað á að gera en sá vitri veit
hvenær. Tímasetning skiptir öllu máli. Leyfðu málum að þróast. Þegar tíminn er kominn tekur þú frumkvæðið og nýtur árangursins!
Í leik getur hver mínúta virkað eins og heil eilífð. Óeirð og óþolinmæði gera vart við sig og þá láta mistökin ekki á sér standa. Að vera þolinmóður þýðir að fylgjast vel með öllu í kringum þig. Hafa augun opin fyrir tækifærum. Bíddu eftir rétta augnablikinu. Þá gerast undrin!