Spilin

5.3 Egó

Hafðu stjórn á egóinu þínu. Egóið er nauðsynlegt til að koma hlutum í verk. Egóið er eins og framkvæmdaraðili fyrir hugann. Egóið tekur ákvarðanir. En ef egóið er gegndarlaust er stutt í stjórnleysi. Með egóinu nærðu því sem hugurinn sækist eftir. En þú skalt passa að það sért örugglega þú sem ákveður hvað það er sem hugurinn girnist. Vertu á varðbergi. Ef vegið er að egóinu er vegið að stoltinu. Og sært stolt er hættulegt. Þá er hætt við að öðrum sé kennt um eigin ófarir og axarsköft. Egóinu er tamt að afneita staðreyndum, koma sér undan ábyrgð og ásaka aðra. Til að verða hluti af góðri liðsheild þarf maður því að hafa stjórn á egóinu. Í samstilltum hópi leggja allir sig fram, hver um sig og fyrir hópinn. Því betri liðsmaður, því betri leikmaður. Vittu hver staða þín í liðinu er, vertu sáttur við hana og leggðu þig allan fram, bæði á æfingum og í leik. Vertu auðmjúkur.