7.7 Innsæismeistarinn

Ég er
meistari innsæisins og stend fyrir allt sem þú ert! Ekkert minna! En hvað meina ég með því? (Nú heyrist dramatísk tónlist!)
Ég er nokkurskonar „X-factor“ sem skilur á milli þess sem er góður leikmaður og þess sem er frábær leikmaður. Báðir eru öflugir, liprir, tæknilega færir, hafa hæfileika og eru góðir liðsmenn. En aðeins annar býr yfir því sem ég hef að bjóða og það er dularfullt innsæið. (Meiri dramatísk tónlist!)
Vissir þú að í innsæinu býr alltaf viska? En þannig er það nú. Það er ekki hægt að taka rangar ákvarðanir ef þær eru byggðar á góðu innsæi. Ekki amalegt! Að taka alltaf rétta ákvörðun? Mér sýnist þú alveg til í það!
Förum samt varlega. Það er ekki víst að þér líki alltaf ráðleggingar mínar. Egóið þitt gæti verið á öðru máli og viljað gera hlutina öðruvísi. En mín leiðsögn er þér alltaf fyrir bestu. Mundu,
ég er allt sem þú ert. Ég veit allt um þig. En sjálfið þitt, egóið þitt ber yfirleitt aðeins eigin hagsmuni fyrir brjósti. Yfirleitt leitar það bara stundargleði og skjótrar umbunar.
Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að ég er og hef alltaf verið tilbúinn til að aðstoða þig. Vandinn er bara sá að þú heyrir ekki í mér, ekki vel alla vega. Það er að sumu leyti mér að kenna. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að ná til þín. Getum við mæst á miðri leið? Værir þú til í það? Ég lofa þér einu. Því meir sem þú hlustar á mig, því háværari skal ég verða. Skellum okkur í þetta!
Þar sem ég er jú meistari, veit ég nákvæmlega hvað snýr að mér. Spurningin er hvað þú eigir að gera. Tilbúinn? Þú byrjar á að hugleiða! Já, ég veit, hljómar ekki sérlega áhugavert. Ekkert adrenalín, engin spenna. Engin umbun einn, tveir og þrír. En þarna talar egóið þitt og kvartar sáran. Egóið þitt yfirgnæfir yfirleitt mína hljóðlátu rödd. Þess vegna höfum við ekki kynnst fyrr. En til að heyra eigin hjartslátt þarftu að róa þig niður og finna kyrrð. Ég bíð eftir því að þú hafir samband. Þegar þú gerir það, lofa ég að verða þinn mesti stuðningur, ekki bara á vellinum (þar sem ég verð samt alveg eins og klettur), heldur líka á öðrum sviðum lífs þíns. Við skulum hittast!
Þegar þú dregur spilið mitt er ég að minna þig á hið óþekkta og ókannaða innra með þér og ég býð þér að tengjast kjarnanum í sjálfum.
P.S.
Ég stend fyrir allar höfuðskepnurnar. Í mér mætast allir kraftar.