1.7 Bati

Hugsanir hafa áhrif á líkamann. Temdu þér jákvætt hugarfar. Hvíldu þig.
Bati er margþættur. Svefn gefur langbesta raun. En þú getur stuðlað að betri endurheimt með því að vera alltaf jákvæður. Það dregur úr streitu. Slakaðu á og vittu að í slökun læknar líkaminn sig sjálfur. Og mundu að endurheimt er tífalt hraðari í djúpu hugleiðsluástandi en í svefni sem getur verið misjafn að gæðum. Nýttu tækifærin sem gefast í leik, t.d. í hornspyrnu eða aukaspyrnu. Það eru dýrmæt „örhlé“ sem þú getur nýtt til hvíldar. Eftir leik er líka mælt með því að ganga eða skokka í nokkrar mínútur og einbeita sér að önduninni og tæma hugann. Góð endurheimt getur verið besta þjálfunin!