Spilin

4.1 Sveigjanleiki

Tréð brotnar, runninn svignar. Sveigjanleiki er lífsnauðsynlegur. Án sveigjanleika erum við stökk og brothætt. Með því að vera sveigjanleg öðlumst við meira úthald hvort sem er líkamlegt eða andlegt. Temdu þér sveigjanleika og þú munt njóta þess bæði innan og utan vallar! Sveigjanleiki dregur stórlega úr hættu á meiðslum. Því er nauðsynlegt að teygja reglulega, hvernig sem þú ferð að því. Jóga er ein góð leið. En það er ekki bara líkaminn sem þarf að vera liðugur. Þú þarft að vera viðbúinn hverju sem gerist, aðlagast hratt síbreytilegri stöðunni á vellinum. Þar liggur sveigjanleiki hugans. Alhliða sveigjanleiki er í raun besta lýsing á stöðugleika.