5.4 Breytingar
Framfarir verða ekki án breytinga. Taktu þeim fagnandi.
Þegar einhver umskipti verða vekja þau oft ugg og það er ekki fyrr en síðar að við sjáum að þrátt fyrir óttann í upphafi, urðu breytingarnar til góðs. Allt hefur sinn tíma. Ekki er sáð að hausti og uppskorið að vetri. Það sama á við í lífinu. Fagnaðu hverjum tíma og áttaðu þig á hvað hann þýðir fyrir þig. Ef þú verður fyrir áverka, til dæmis, gættu þess að verða ekki gagntekinn af meiðslunum. Notaðu tímann til að ná heilsu eftir öllum færum leiðum. Ef þér er skipað á varamannabekk, notaðu tímann samt vel til að verða betri og komast aftur í liðið. Komdu svo tvíefldur aftur til leiks, tilbúinn að setja mark þitt á leikinn!