Spilin

1.1 Styrkmeistarinn

Ertu ekki sammála því að líkaminn sé okkur afar mikilvægur? Sem meistari styrkleikans vil ég minna þig á að hlúa vel að líkamanum og átta þig á hvað hann getur og hvað ekki. Með þjálfun byggir þú upp styrk sem tæknilega séð þýðir að þú getur búið yfir sífellt meiri orku. Ekki ólíkt rafhlöðu. Því meir sem þú æfir því stærri verður rafhlaðan og því meiri orku getur þú bundið í líkamanum. Þegar þú losar um orkuna finnur þú kraftinn sem í þér býr. Svo þarftu alltaf að hlaða batteríið aftur. Í djúpu hvíldarástandi endurnýjast orkan og vaxtarhormón sem eru nauðsynleg til að byggja upp styrk flæða út í líkamann. Því er jafn mikilvægt að vera rólegur og opinn eins og ákafur og spenntur. Ró og slökun finnur þú í góðum svefni eða í hugleiðslu en ekki við sjónvarpið eða í símanum. Mitt frumefni er Jörðin, táknuð með kletti. Sterkur og stöðugur grunnur til að byggja á. Ef þú dregur spilið mitt, minnir það þig á að hugsa vel um líkamann. Borðaðu næringar- og orkuríkan mat. Farðu á æfingu, teygðu og hvíldu þig. Það getur haft alvarlegar afleiðingar að hlusta ekki á líkamann. Vertu eins og klettur, hann er bísna tilkomumikill!