Spilin

7.5 Hugleiðsla

Tengdu við þitt innra sjálf. Hreyfing veldur ákveðnu niðurbroti. Þú brennir orku og vöðvar og stoðkerfi slitna. Í kyrrð er hægt að snúa þessu ferli við. Þess vegna þurfum við að sofa. En svefn er ekki alltaf nægilega djúpur og góður til þess að viðgerð geti farið fram. Það má bæta upp með góðri hugleiðslu. Hugleiðsla er innri uppbygging og samþætting á því sem þú kannt og lærir. Hún stuðlar að andlegri vellíðan og hjálpar þér að tengjast þínu raunverulega sjálfi. Hægt er að hugleiða á margan hátt: með hreyfingu eins og í Tai Chi eða jóga, með því að sitja eða liggja og einblína á öndun eða með öðrum hætti, úr nógu er að velja. Með meiri þjálfun í hugleiðslu fer innsæið að leika stærra hlutverk og þú nýtur þess. Prófaðu mismunandi leiðir, finndu þína hugleiðsluaðferð og samþættu við þína daglegu rútínu. Gerðu hugleiðslu að vana. Byrjaðu strax!