Spilin

4.2 Löngun

Finndu hvernig löngunin kraumar innra með þér. Vertu samt á varðbergi gagnvart hvatvísi. Vertu markviss og taktu hlutina í skrefum. Langar þig að ná árangri sem hingað til hefur verið utan seilingar eða komast á áður óþekktar slóðir? Frábært! Þá hefur þú allt til að bera til að ná langt. Í alvöru. Passaðu þig bara á því að kæfa ekki neistann með óþolinmæði og gremju. Haltu lönguninni lifandi. Finndu fyrir henni. Leyfðu henni að leiða þig að takmarki þínu og njóttu þess að fagna þegar þú nærð árangri. Þú vilt spila, þig langar að vinna. Um þetta tvennt snýst þrá leikmannsins. Hún er nauðsynleg en getur verið hættuleg ef ekki er rétt haldið á spöðunum. Ef óskin er of áköf getur maður farið fram úr sér og gert eitthvað sem maður sér eftir síðar. Þú skalt því ekki láta hvatvísi bera þig ofurliði, hver sem draumurinn er. Vertu í góðu jafnvægi, nýttu orkuna vel og skipuleggðu leiðina að markinu. Vertu útspekúleraður. Þegar þinn tími kemur setur þú allt í gang og ekkert fær stoppað þig!