5.1 Undirbúningur
Vertu viðbúinn. Vertu viljugur. Vertu dugandi.
Þegar við leggjum af stað í ferðalag pökkum við niður því sem við munum þurfa. Mun rigna? Verður kalt í veðri eða heitt? Er ætlunin að fara í sund eða sjó, á kannski að borða á fínum veitingastað? Það er ekki hægt að taka allan fataskápinn með en við þurfum samt að vera búin undir það helsta – og líka það óvænta.
Þjálfunin miðar að því að gera þig kláran fyrir átökin á vellinum. En þú þarft meira því svo margt getur gerst. Getur þú tekist á við áföll eins og að standast ekki kröfur og væntingar? Mótbyr? Eða kannski skjótan frama og mikla fjármuni? Hvernig ætlar þú að búa þig undir slíkt? Vertu viðbúinn öllu.