Spilin

1.4 Stöðugleiki

Stöðugleiki fæst með aga og góðum ramma. Ramminn er ekki stífur. Góður rammi er sveigjanlegur og má verða fyrir hnjaski. Ef stífleiki er of mikill brotnar ramminn undan álagi. En rammi sér til þess að þú farir ekki út af sporinu. Langar þig að standa þig vel í öllum leikjum, ekki bara þremur og svo einum slæmum? Þá skaltu ná stöðugleika í lífi þínu. Það er ekki hægt að hafa stöðugleika á einu sviði í lífinu og ekki öðru. Allt hangir á sömu spýtunni. Farðu að sofa á sama tíma á kvöldin, farðu á fætur á sama tíma. Borðaðu reglulega, hollan mat. Hafðu reglu á hlutunum heima fyrir og vertu staðfastur. Þá getur ekkert komið þér úr jafnvægi.