2.3 Að brjótast í gegn

Með krafti og orku sigrast þú á hindrunum.
Það er erfitt að ímynda sér fótbolta án mótherja. Án þeirra væri enginn leikur. Þú þarft andstæðinga og áskoranir og hindranir eru til þess að ryðja þeim úr vegi.
Sjáðu þetta spil sem þú hefur dregið. Þarna sérðu framrás leikmanns gegnum varnir mótherjanna. Undir álagi finnur þú nýjar leiðir til að nýta orku þína og brjótast í gegnum mótstöðu sem þú mætir. Pressan gerir þig úrræðagóðan og skapandi. Notaðu orkuna og kraftinn til að ryðja öllum hindrunum úr vegi. Áfram, áfram, áfram!