6.3 Hugrekki
Trúðu og treystu. Sýndu hvað í þér býr. Vertu klókari en hinir.
Með hugrekki ferðu fram þrátt fyrir ótta. Ekki hika. Hafðu trú á sjálfum þér og gakktu fram því tækifærin koma. Vertu klókari en hinir. Þá næst árangur svo um munar!
Er andstæðingurinn stærri og sterkari? Ekkert mál! Það er alltaf leið framhjá því. Allir hafa sína veikleika. Finndu veikleika mótherjans. Þar skaltu ráðast fram af fullum krafti. Þér má ekki finnast eins og þú hafir misst af tækifærinu sem bauðst. Gættu þess samt að vera ekki glannalegur. Sýndu aðgát en taktu áhættuna. Það margborgar sig.