1.2 Úthald

Ef þú hrasar, stattu þá upp aftur. Lærðu að treina orkuna og láta hana endast.
Úthald er gríðarlega mikilvægt og það þarf að rækta af mikilli þolinmæði og seiglu. Þú þarft ekki bara að hafa stóran tank, ef svo má segja, hann þarf líka að vera fullur.
Áður en leiktímabilið hefst, byggir þú upp þrek en góður svefn er líka nauðsynlegur, heilbrigt mataræði og kraftur í undirbúningnum. Þekktu þín takmörk. Láttu orkuna endast allar 90 mínúturnar og meira en það ef þörf yrði á. Vertu líka klókur. Lærðu að hlaða batteríin meðan á leiknum stendur. Notaðu hornspyrnur og aukaspyrnur til að slaka á og ná andanum. Teygjur eru mikilvægar eftir æfingar og leiki til að halda liðleika. Þú hefur styrk og orku, þú ert á réttri leið!