Spilin

4.3 Að gefa

Leggðu þig allan fram. Vertu örlátur. Þegar við gefum viljum við að gjöfin sé vel þegin. Þá getur tímasetning skipt máli, einnig að gjöfin sé vel valin, sé sú rétta á réttum tíma. Við gefum til að gleðja aðra, ekki okkur sjálf. Mundu að það sem ekki er gefið fer forgörðum. Hefur þú einhvern tíma verið í dauðafæri en þá séð félaga þinn í enn betra færi? Þú gefur boltann, hann tekur vel á móti og dúndrar hann honum beint í mark. Gleði og fögnuður brýst út. Um þetta snýst það að gefa. Og það sem þú gefur í dag, færðu til baka á morgun. Vertu því örlátur!