Spilin

3.1 Ástríða

Eldurinn logar. Nýttu kraftinn á uppbyggilegan hátt. Það er í ástríðunni sem þú blómstrar og möguleikarnir opnast. Nýttu þér hana. Hún getur verið eins og sinueldur sem eirir engu á leið sinni eða eins og kraftmikil eldflaug sem stýrir brunanum að skotmarki sínu. Hvort sem lýsir þér betur, verður þú að stjórna ástríðu þinni. Fótboltinn kallar oft fram mikla ástríðu bæði innan vallar og utan. Þess vegna er leikurinn jafn vinsæll og raun ber vitni. Sem leikmaður þarftu að átta þig á að tilfinningar þínar laða fram kraftinn í þér. Ekki öfugt. Þegar þú finnur ástríðuna, finnur þú kraftinn. Nýttu ástríðuna eins og hvert annað verkfæri til að ná árangri. Hún mun gefa þér innspýtinguna sem svo oft er nauðsynleg í hita leiksins. Hún laðar fram það sem í þér býr. Ef þú snýrð þessu á haus og lætur kraftinn stjórna tilfinningunum, þá er voðinn vís. Kyntu undir ástríðunni og nýttu hana til hins ítrasta!