6.2 Frumkvæði
Tíminn er kominn. Taktu af skarið. Hafðu áhrif.
Það er eitt að vera þolinmóður og leyfa málum að þróast og annað að standa aðgerðalaus og hjakka í sama farinu. Þegar svoleiðis er ástatt er kominn tími til að hreyfa sig. Höggva á hnútinn. Sú stund er komin.
Stundum festast leikmenn í ákveðnu fari og í stað þess að rísa upp og reyna að breyta framvindunni og vinna leikinn, verða þeir óöruggir og þora ekki út fyrir þægindarammann. En þá er einmitt rétti tíminn fyrir þig að taka frumkvæðið og drífa félagana áfram. Þannig breytið þið atburðarásinni. Með ferskan fókus og nýjan drifkraft ertu kominn í aðstöðu til að hafa mikil áhrif. Þannig á að vinna leik.