Spilin

6.6 Fókusmeistarinn

Mynd sem ekki er í fókus er vita gagnslaus. Hún er þokukennd og ómögulegt að greina nokkur smáatriði. Hún sýnir hvorki ákveðið augnablik né vekur hún minningar, hún hefur engan tilgang. Það sama má segja um leik þar sem einbeitinguna skortir. Leikurinn glutrast niður. Kannastu ekki við það? Það verður varla verra! Ég er meistari einbeitingar og fókuss og undirstöðuefni mitt er ljósið, birtan sem þú sérð. En samt er ljós ósýnilegt. Hvernig er þá hægt að sjá það? Maður sér uppsprettu ljóssins og fletina sem það endurvarpast af en maður sér ekki ljósið sjálft. Er það ekki merkilegt? En það þarf ekki að velta því mikið fyrir sér, það hefur enginn fundið almennilega út úr þessu með ljósið. En ég er með leyniskilaboð til þín. Tilbúinn? Gott. Þau snúast um athygli. Einmitt. Vísindin hafa sýnt fram á að ljósbylgjur haga sér öðruvísi ef einhver er að fylgjast með þeim. Enginn veit hvers vegna. Það sem skiptir máli er að athygli skiptir máli. Miklu máli. Því án hennar er allt þokukennt. Hjá sumum er allt lífið ein samfelld bræla. Þá skortir markmið og fókus til að ná þeim. Þegar þú keppir að háleitu markmiði skaltu af og til stoppa í miðjum klíðum og „sjá“. Þannig skerpir þú fókusinn á myndinni sem þú hefur í huga þér. Mynd í góðri skerpu sýnir fleiri smáatriði, gefur betri upplýsingar. Með réttum upplýsingum tekur þú betri ákvarðanir. Á vellinum, með athyglina í lagi, getur þú frekar getið þér til um næsta leik andstæðingsins. Það eru sannarlega upplýsingar sem þú getur nýtt til hins ýtrasta. Meistararnir sem næst mér standa eru meistarar samhljóms og innsæis. Mörkin á milli okkar eru óljós og við höfum áhrif á líkum sviðum. Þess vegna er nauðsynlegt að flétta saman samhljóm og innsæi, hugleiðslu, gjörhygli og eftirtekt því allt stuðlar það að betri fókus. Hafðu þó eitt í huga. Þegar þú verður orðinn virkilega góður í þessu, ferðu að sjá ýmislegt sem aðrir sjá ekki. Þá ertu á eigin ábyrgð. En þú varst varaður við! Þegar þú dregur spilið mitt vil ég minna þig á að veita umhverfi þínu athygli og safna upplýsingum, fylgjast með og læra. Skilja og nýta.