Spilin

6.5 Í sporum annarra

Sjáðu sjálfan þig í öðrum. Sjáðu aðra í sjálfum þér. Þegar þú setur þig í spor annarra getur þú stillt þig inn á þeirra bylgjulengd, fundið hvernig þeim líður. Þú getur sýnt stuðning og samkennd með því að endurspegla líkamsstöðu þeirra, hreyfingar eða raddblæ og með því skapað ákveðna samkennd á milli ykkar. Vertu meðvitaður um framkomu þína og hvað þú laðar fram í öðrum. Barn að aldri hefur þú líklega hermt eftir aðal fótboltahetjunni þinni. Og einmitt þannig fáum við innblástur og förum að sjá fyrir okkur hvert við viljum stefna. Þegar liðsmenn leitast við að endurspegla hver annan má ná fram miklum samhug og félagsanda. Þú getur líka endurspeglað andstæðinginn og þannig leitað leiða til að átta þig betur á honum og sjá jafnvel fyrir næsta leik hans. Sökktu þér þó ekki of djúpt í þetta, gættu alltaf að eigin mörkum, líkamlegum og andlegum.