3.3 Kraftmeistarinn

Ég er meistari kraftsins og ég tengist frumkrafti eldsins. Eldur er stórkostlegur. Allt sem eldur kemst í snertingu við umbreytist. Viður verður að ösku og járn að stáli. Ert þú búinn undir umbreytingu? Tilbúinn í betri frammistöðu? Að verða skilvirkari? Frábært. Þá skaltu læra að temja eldinn í sjálfum þér! En eins og þú veist þá leikur maður sér ekki að eldinum, maður hefur alltaf gát á honum. Þegar þú losar um eða brennir orkunni þinni losna kraftar þínir. Því meiri bruni, því öflugri ertu. En varastu sprengingu, þegar öll uppsöfnuð orkan brennur upp á augabragði. Úr því verður aðeins eyðilegging. Enginn kærir sig um það.
Til að snúast þarf vél að vera vel smurð og í lagi. Taugatitringur, hugaræsing, kraftleysi, stífleiki eða meiðsli hafa öll áhrif á frammistöðu þína. Hvers kyns flækjur og ójafnvægi draga úr skilvirkni og meiri hætta er á að leikmaður komist í þrot. Til að nýta kraftinn rétt þarf allt að vera fínstillt og undir styrkri stjórn. Og þar sem góð vísa er aldrei of oft kveðin vil ég minna á að kraftur framkallar meiri kraft – svo mikinn að þú getur skaðað sjálfan þig og aðra. Aldrei misnota krafta þína. Aldrei.
Eldur nærist á lofti. Skoðaðu Jafnvægismeistarann til að læra um öndun. Hún er upphaf og endir alls! Með öndun fer að skíðloga innra með okkur, akkúrat það sem þarf til knýja vélina. Ef þig langar að vita hvernig tíbet-munkar fara að því að sitja úti í snjónum í blautum klæðum og láta þau þorna af líkamshitanum einum saman, þá gera þeir það með því að breyta önduninni í hita, aðferð sem kölluð er
tummo.
Lifrin og heilinn eru mjög orkufrek líffæri sem og hjartað og nýrun. Þess vegna þarftu að borða snemma fyrir leik og halda ró þinni – alveg fram á síðustu stundu. Þá kveikir þú undir og virkjar kraftinn eins og villidýr á vellinum!
Þegar þú dregur spilið mitt er ég að minna þig á að virkja eldinn í þér. Leysa ástríðu og kraft úr læðingi, verða óstöðvandi. Verða eins og náttúruafl!