5.5 Samhljómsmeistarinn

Ímyndaðu þér sinfóníuhljómsveit þar sem enginn leikur sama lagið. Það yrði ærandi. En hvað ef allir léku sama lagið en öll hljóðfærin væru fölsk? Útkoman yrði ekki mikið betri!
Sem meistari samhljóms vil ég minna þig á að stilla þitt hljóðfæri og gæta þess að vera í samhljómi við umhverfi þitt. Hljóðið er minn vettvangur. Hljóð er víbringur og allt í tilverunni víbrar. Allt. Og annað hvort er þú stilltur inn á þennan víbring eða ekki. Ef þú ert það, er samhljómur milli þín og umhverfis þíns. Og í samhljómi gengur allt betur! Ég lofa því!
En þetta er ekki einfalt, alls ekki. Því þú ert ekki einn og sama hvað hljóðfæri þitt er vel stillt, þá ræður þú ekki við tóneyra annarra. En þú átt alltaf þann leik að sýna öðrum stuðning. Til að gera það þarftu að hlusta og virkilega heyra hvað aðrir hafa að segja. Þér finnst kannski að aðrir þurfi að fínstilla sig en svo ert það þú sjálfur sem þarft að gæta að þér. Þú skalt þess vegna hlusta grannt. Fylgjast vel með. Íhuga. Þegar þú svo veist hvað þú vilt segja þá segir þú það! Fylgdu þar leiðbeiningum okkar um hvernig eigi að tala. Mundu, vertu hjálpsamur og vingjarnlegur.
Þegar þú dregur spilið mitt skaltu huga að því að fínstilla þig og tengjast umhverfinu á réttri bylgjulengd, hlusta og leggja svo þitt til málanna þegar tilefni er til.