5.6 Mörk
Veittu vernd. Njóttu verndar.
Sá sem getur sett heilbrigð mörk skilur vel á milli sín og annarra. Mörk eru samt ekki eins og steinveggur sem umlykur mann. Mörk eru margvísleg og sveigjanleg, líkamleg, andleg og tilfinningaleg. Með því að setja skýr mörk getum við verndað okkur fyrir umhverfinu en líka áttað okkur á því hversu langt við erum tilbúin að ganga því alltaf viljum við sýna heilindi og virðingu og gæta að heiðri okkar.
Með því að setja mörk erum við með allt á hreinu, við fylgjumst með og gætum að öllu. Segjum að liðið vinni leik og þú hafir skorað sigurmarkið. Þið farið út að skemmta ykkur á eftir, þú hvolfir í þig einni flösku. Hvernig myndi það enda? Ekki vel, svo mikið er víst. Sá sem er góður í að setja mörk hefði drukkið einn bjór, kannski engan. Ekki líta á mörk eins og eitthvert búr sem þú kemst ekki út úr. Mörkin eru eins og borði meðfram hlaupabraut svo þú vitir alltaf hvert þú stefnir. Innan marka eru bestu vaxtarskilyrðin, þar ríkir virðingin fyrir sjálfum þér og íþrótt þinni.