7.3 Hógværð
Hógværð er dyggð.
Sá sem er hógvær er nógu sterkur til að þurfa ekki að trana fram egóinu sínu. Hann hefur sjálfstjórn og um leið – vald. Hann er þegar á toppnum. Hann þarf ekki að gera lítið úr neinum.
Hinn lítilláti virðir andstæðing sinn. Hann veit hvernig mótherjanum líður því hann þekkir hlutskipti hans af eigin raun. Þess vegna réttir hann hjálparhönd. Talar af vinsemd. Reisir við þegar svo ber undir. Þakkar leik með handabandi. Vertu góð manneskja!