Spilin

4.4 Jafnvægismeistarinn

Ég er ekki bara jafnvægismeistarinn heldur meistari meistaranna. Lofaðu bara að segja þeim hinum ekki frá því. Samt er ég með einföldustu skilaboðin: Andaðu! Frumefnið mitt er loft. Hægt er að komast af í margar vikur án matar og daga án vatns en aðeins nokkrar mínútur án lofts. Þess vegna er ég svona mikilvæg. Loft er líf. Þér finnst kannski ekki mikið til koma. Öndun? Í alvöru? Kunna ekki allir að anda? Alveg rétt. Venjuleg öndun gerist sjálfkrafa og án þess að við veitum henni nokkra athygli. En við getum stjórnað henni. Þannig getum við talað og sungið. Og meira til – rannsóknir hafa sýnt að þegar við öndum meðvitað (þ.e. fylgjumst grannt með loftinu fara út og inn, brjósti eða maga lyftast og hníga) verða til tengingar í heilanum á okkur, á milli hins meðvitaða og ómeðvitaða. Við það dregur úr streitu, núvitund eykst og einbeiting. Við slökum á. Hugsum skýrt. Tökum betri ákvarðanir. Stjórnum betur viðbrögðum okkar. Finnurðu fyrir reiði? Andaðu. Kvíða? Andaðu. Ertu á taugum? Andaðu. Áttu erfitt með að sofna? Andaðu. Einmitt! Með því að fylgjast með önduninni nærðu jafnvægi. Gott jafnvægi er samnefnari góðrar heilsu. Í jóga snýst allt um öndun. Kynntu þér grunnaðferðirnar. Þær hafa um aldir skilað góðum árangri. Þær eru einfaldar og hægt að nota hvar og hvenær sem er. Jafnvel úti á velli. Ég mana þig! Þú þarft hvort sem er að anda! Af hverju ekki að ná tökum á því þannig að það skili þér ekki bara súrefni heldur líka jafnvægi? Þér er óhætt að treysta mér, ég er jafnvægismeistarinn. Annað mjög mikilvægt – plöntur. Við öndum að okkur súrefni og frá okkur koltvísýringi sem er í raun súrefni með einu kolefnisatómi. Plöntur kljúfa þetta efnasamband, nýta kolefnið sér til uppbyggingar og losa súrefnið aftur út í andrúmsloftið. Við njótum góðs af því. Þetta er bæði stórkostlegt undur og fallegt! Þú skalt þess vegna fara sem oftast út í náttúruna og alltaf hafa plöntur á heimili þínu. Spilið mitt er í miðjum spilastokknum. Á undan mér eru 24 spil og sami fjöldi á eftir mér. Ég er miðjunni þegar öll spilin eru lögð á borðið í réttri litaröð. Öll tengjast þau mér, ég er jafnvægið á milli þeirra. Ég er jafnvægið þitt! Dróstu spilið mitt? Andaðu djúpt!