„Á 24 ára ferli mínum sem atvinnumaður í fótbolta fékk ég minn skerf af meiðslum, svo ekki sé meira sagt, og bætti jafnvel nokkrum við eftir að ég hætti að spila. Hægt er að laga bein og endurhæfa vöðva en andlegri heilsu þarf einnig að sinna.
Árið 1983, 22 ára að aldri lenti ég í slæmum meiðslum þar sem rassvöðvafesting rifnaði frá beini. Eftir sjö mánuði byrjaði ég að æfa aftur en þar sem ég var ekki orðinn hell sleit í kjölfarið liðböndin í hnénu. Slæmt ástand varð verra og í tvö ár var ég alveg frá.
Svo var það árið 1985, heima á Íslandi að ég var sendur af ömmu minni í meðferð hjá öldruðum manni í sveitinni. Hann var ekki heilbrigðismenntaður en notaði sínar aðferðir, gömlu leiðirnar skulum við bara segja. Hann lagaði mig, bæði rassinn á mér og hnéð. Hann sagði mér síðan hversu mikilvæg hugleiðsla væri til að viðhalda almennri heilsu. Ég hafði ekki hugmynd um hvað hann var að tala um en hann kenndi mér og með reglulegri ástundun komst ég til baka og gat haldið áfram ferlinum í 14 ár til viðbótar.
Ég er eindregið þeirrar skoðunar að nú sé kominn tími til að innleiða markvissa andlega þjálfun í allar íþróttir jafnt á við líkamlega þjálfun. Við hjá Kick on Mind bjuggum til Meistaraspilin sem einfalt en öflugt tæki í þeim tilgangi. Spilin sameina bæði gamlar og nýjar aðferðir og ég er sannfærður um að sú leið geti hjálpað öðrum, alveg eins og hún hjálpaði mér.“
