1.6 Venjur

Komdu þér upp góðum siðum. Vendu þig af vondum ávana.
Með góðum venjum er auðveldara að halda sínu striki. Haltu þeim venjum sem hjálpa þér og breyttu öðrum. Slæmur ávani getur haldið aftur af okkur og komið í veg fyrir framfarir. Búðu þér til rútínu sem tekur tillit til allra nauðsynlegra þátta svo þú getir náð árangri, ekki hugsa eingöngu um líkamlega þjálfun. Þú þarft að geta verið í flæði sem hjálpar þér að kynnast sjálfum þér betur sem leikmanni. Ef þú tileinkar þér góða siði og reglu í daglegu lífi mun það einnig nýtast þér í leiknum. Það tekur um 40 daga að tileinka sér nýjar venjur. Byrjaðu strax!