Spilin

2.2 Orkumeistarinn

Ég er meistari orkunnar og af höfuðskepnunum fjórum tilheyri ég vatninu. Sjáðu fyrir þér orkuna sem þú býrð yfir sem stóran vatnstank. Tankurinn táknar styrk þinn, hann heldur vatninu inni. En vatnið sjálft er orkan eða hleðslan. Þegar vatnið flæðir út leysir þú kraftinn úr læðingi. Þú veist alltaf hver hleðslan er, tilfinningar þínar virka eins og barómeter. Þegar tankurinn er fullur, líður þér vel. Allt gengur þér í hag, þú er klár í slaginn. Þú finnur fyrir spennu, ástríðu og væntingar eru miklar. En þegar lítið er í tankinum er eins og allur vindur sé úr þér. Kraftleysi og áhugaleysi hreiðra um sig. Neikvæðar tilfinningar (sektarkennd, gremja, vonbrigði, óþol, reiði og fleira) grugga vatnið í orkutankinum þínum. Mold, sandur og rusl fýkur á hann. Svo þegar þú ætlar að opna fyrir vatnið, nýta orkuna, færðu yfir þig aurskriðu í stað tæru, aflmiklu straumanna sem eiga að knýja þig áfram. Ef þú dregur spilið mitt þýðir það að þú þarft að hlusta á tilfinningar þínar og læra að takast á við þær. Að halda vatnsbirgðum sínum tærum er alveg jafn mikilvægt og að byggja upp þrek og æfa tækni. Reyndu að hafa fallegt í kringum þig – og gleði. Njóttu umhyggju sem fjölskylda og vinir veita. Finndu ró og frið til að hlaða batteríin.