3.4 Að taka á móti

Eftirvænting. Vertu viðbúinn að taka á móti.
Vertu tilbúinn að taka á móti því sem þér er gefið. Gjafir, hrós, ráð og umhyggja. Allt eru þetta gjafir. Taktu við þeim og mundu að sýna þakklæti.
Þekkirðu tilfinninguna að standa í vítateignum, óvaldaður fyrir opnu marki, tilbúinn og æstur í að fá boltann til að sparka honum beint í mark? Örugglega. Það er alltaf einhver sem vill gefa boltann um leið og færi gefst – svo þú skalt vera tilbúinn. Vertu klár, líka fyrir það sem gerist óvænt. Vertu á tánum, vakandi – allt getur gerst! Mundu bara að sýna þakklæti, félögum þínum, stuðningsmönnum, öllum sem treysta á þig. Vertu viðbúinn!