7.6 Að sjá fyrir sér
Sjáðu það gerast áður en það gerist.
Með því að ímynda þér sjálfan þig með boltann getur þú bætt frammistöðu þína. Sjáðu fyrir þér sparkið, tæklinguna, upphlaupið, hvað sem er. Sjáðu það fyrir þér aftur og aftur hvernig þú myndir vilja fara að. Þannig getur þú búið þig undir tækifærið þegar það kemur. Þú getur ýmist búið þér til myndir í huganum sem þú flettir aftur og aftur, eða ímyndað þér einhverjar aðstæður og fylgst með hvernig spilast úr þeim í huga þér meðan þú hugleiðir eða bara látið hugann reika og fylgst með því sem kemur upp. Allt hjálpar þetta til við að búa þig undir raunveruleikann. Ert þú tilbúinn?
Þegar þú ímyndar þér sjálfan þig í erfiðri stöðu úti á vellinum þá ertu að sjá fyrir þér aðstæður. Ef þú ferð í gegnum leik í huganum áður en hann hefst, þá ertu líka að sjá fyrir þér. Þegar þú ímyndar þér að þú sért að skora sigurmarkið, þá ertu líka að sjá fyrir þér. Þú hefur líklega gert þetta alla tíð án þess að hafa sett á það neinn sérstakan merkimiða. Héðan í frá skaltu sjá sjálfan þig fyrir þér á meðvitaðan hátt. Skrifaðu niður það sem þú sérð fyrir þér, geymdu hugleiðingar þínar á góðum stað, og lestu þær yfir áður en þú ferð að sofa. Hafðu þær fyrir þig. Svo skaltu þeysast fram á völlinn og láta sýnir þínar rætast!