Spilin

2.1 Seigla

Aldrei gefast upp. Vertu seigari en aðrir. Haltu gremju í skefjum. Sýndu skapfestu. Lífið er ekki alltaf gott, stundum hreint ömurlegt. Maður getur verið sleginn út af laginu, sama hvað maður er harður af sér. Það sem skiptir máli er ekki að geta kýlt til baka heldur það að geta staðið upp aftur og haldið áfram. Á misjöfnu þrífast börnin best var sagt hér í gamla daga. Í erfiðleikum geta menn eflst við hverja raun. Og þá meinum við í fótboltanum – ekki bara í lífinu almennt. Allir leikmenn mæta mótstöðu og erfiðleikum. Þá skiptir öllu að sýna þrautseigju og úthald, taka sig saman í andlitinu og halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Sama hvað. Þetta lærist og þú munt sjá árangur. Svo þú skalt ekki hætta og ekki missa móðinn. Gefstu aldrei upp – þá er ekkert sem stoppar þig!