2.5 Að hlusta

Hlustaðu á sjálfan þig. Hlustaðu á aðra. Hlustaðu áður en þú talar.
Sagt er að við höfum tvö eyru en einn munn því við ættum að hlusta meira en við tölum. Hlustaðu, ekki bara til að geta svarað, heldur til að læra og skilja. Hlustun er það sama og að veita einhverju athygli og þú gerir það með fleiru en bara eyrunum. Líkami þinn talar til þín með verkjum eða vellíðan. Orkan birtist þér í tilfinningum þínum og innsæið er alltaf að miðla einhverju til þín. Ertu að hlusta?
Sem fótboltamaður þarftu að hlusta á svo marga vegu. Þú þarft að meðtaka það sem er að gerast í kringum þig, hlusta á þjálfarann, félagana og aðra. Og þú verður að hlusta á líkamann. Ef þú gerir það ekki, fer illa. Meiðsl, stífleiki og þreyta banka upp á og vilja að hlustað sé á og brugðist við. Þú þarft að vera vel búinn undir næsta leik, jafnvel þarftu að sleppa leik ef þannig háttar. Vertu góður hlustandi!