1.3 Möguleikar

Þú hefur allt til að ná árangri. Haltu vel á spilunum.
Þú hefur meiri burði en þú heldur. Ógrynni, ef þú veist hvernig þú átt að virkja þá. Það sem gæti staðið í vegi þínum er þó líklega helst þitt eigið hugarfar. Beislaðu kraftinn. Þú veist þú getur meira!
Ónýttir hæfileikar þínir eru eins og eldsneyti sem bíður eftir neistanum sem kveikir í því og knýr þig af stað. Í iðrum jarðar er eldvirkni. Samskonar kraftar búa innra með þér. Þú getur nálgast þá og náð þeim stað og árangri sem þig dreymir um. Ef þú ert hins vegar ánægður með stöðu þína í liðinu eins og er, þá áttu bara eftir að spila enn betur. Því þú munt komast að því að þú getur gert miklu betur. Þú þarft að finna ástríðuna fyrir leiknum og nota hana þér í hag.