4.6 Metnaður

Láttu kapp og metnað hefja þig í hæstu hæðir. Upp yfir allt, út yfir allt.
Það gildir einu hvor þú nærð markmiði þínu. Það er ferðin þangað sem skiptir máli. Ef metnaðinn skortir siglir þú í strand. Þá verða engar fleiri uppgötvanir. Værukærð hreiðrar um sig og þá er stutt í stöðnun. Leitaðu stöðugt að innblæstri til að kynda undir metnaðinn.
Vonir þínar um að verða stórkostlegur leikmaður og komast einn daginn á heimsmeistaramótið eru alls ekki barnalegir hugarórar. Vonir þínar virka eins og fýsibelgur á eld, eins og andardráttur á lífið. Því skaltu hlúa að voninni – allan þinn feril. Ef hugurinn veit hvert hann stefnir verður auðveldara að ná höfn. Sjáðu fyrir þér hvert einasta skref, hverja nýja vörðu á leiðinni. Hafðu aldrei augun af takmarki þínu.