Spilin

2.7 Gleði

Þetta er leikur. Gaman, gaman! Manstu þegar þú varst barn? Alla leikina, eintóma gleði? Það er tilfinningin sem þú þarft að nýta til að halda þér ferskum. Zen-meistari sagði eitt sinn: „Í huga sérfræðings eru fáir möguleikar. Í huga byrjandans eru ótal leiðir.“ Vertu alltaf „byrjandi“. Hafðu gleðina hugfasta. Rifjaðu upp þegar þú varst barn. Engar kvaðir, engar flóknar reglur, allt svo frjálst. Mundu þessa tilfinningu og tengdu við hana á vellinum. Ekki týna barninu í þér. Leyfðu þér að þykja gaman! Í hverjum einasta leik!