7.4 Þakklæti
Þakka það sem er – og það sem er í vændum.
Lífið er gjöfult. Vertu þakklátur fyrir bæði gott og það sem er síðra. Ekkert stuðlar betur að góðu jafnvægi en þakklæti. Vertu duglegur að tjá það.
Þegar við erum þakklát erum við meðvituð eins og í gjörhygli. Í þakklæti er fókusinn á nútíðinni. Á meðan erum við ekki að stæra okkur af afrekum fortíðar. Þakklátur hugur tekur engu sem sjálfsögðum hlut. Vertu þakklátur fyrir að eiga fótboltann sem áhugamál eða hafa hann að atvinnu. Vertu þakklátur fyrir að vera meðal hraustustu manna, að hafa í kringum þig fólk sem þykir vænt um þig, hvetur þig, heldur með þér og treystir á þig. Ræktaðu með þér þakklætið og þú munt sjá hversu mikið þér hefur í rauninni verið gefið.