7.1 Svefn
Allt hvílir á svefninum!
Það er í svefninum sem þú uppskerð. Vakandi ertu sístarfandi. Þjálfun reynir á líkama og sál og orkan þverr. En með svefninum kemur uppbyggingin. Þá gefur líkaminn frá sér vaxtarhormón. Meiðsl gróa. Úrgangsefni eru skilin út. Orka endurnýjast. Það sem þú hefur lært yfir daginn tekur á sig fastari mynd. Ávöxturinn af erfiði dagsins raungerist í góðri næturhvíld. Því skaltu huga mjög vel að svefni þínum!
Allt sem truflar góðan svefn svo sem óreglulegur svefntími, kvíði, streita og sérstaklega áfengi, dregur úr árangri þínum sem fótboltamanns. Mesti batinn verður snemma nætur þegar svefninn er djúpur. Þess vegna verður þú að taka svefninn jafn alvarlega og frammistöðu þína á vellinum. Því framganga þín þar veltur að miklu leyti á hversu vel og lengi þú sefur. Við erum ólík svo þú verður að finna út hversu mikinn svefn þú þarft og koma þér upp rútínu. Allt
hvílir á svefninum!