3.2 Pressa

Settu þér þína eigin pressu.
Það er engin spurning að streita og álag tengist fótboltanum. Á öllum sviðum. Líkaminn er undir álagi. Taugarnar eru þandar og pressan frá liðinu, félögunum, stuðningsmönnum og fréttamönnum er áþreifanleg. Allir finna fyrir því. En eina pressan sem maður á að taka alvarlega er sú sem maður kýs sjálfur. Hún eflir mann.
Margir leikmenn segjast eiga sína bestu leiki undir álagi. Hvers vegna? Þeir sneru utanaðkomandi pressu sér í hag. Nýttu þér pressuna til að leysa kraft þinn úr læðingi og brjótast í gegnum mótstöðuna!