Skip to main content

Hafðu stjórn á sjálfum þér við allar aðstæður.

Hafðu vald á líkama þínum og framkomu. Það er mikilvægast. Það er tilgangslaust að reyna að stjórna því sem maður hefur ekkert um að segja. Sóaðu ekki kröftum þínum. Sumt getur maður haft áhrif á en annað ekki. Taktu ábyrgð á því sem þú getur breytt en láttu annað eiga sig.

Ef þú leyfir gremju að krauma innra með þér fá aðstæður að stjórna þér í stað þess að þú stjórnir þeim. Við það afsalar þú þér valdi yfir sjálfum þér. Fótboltinn felur í sér svo margt: kraft, ástríðu, væntingar og aðdáendur sem allt sameinast í leiknum. Þú finnur fyrir þessu öllu þegar þú ert á vellinum. Það getur orðið yfirþyrmandi ef þú bægir því ekki frá þér. Vertu því einbeittur, skarpur – og þú munt ná að hafa stjórn á öllu!